Aðventufegurð í Filzmoos

Hér höldum við í aðventuævintýri inn á milli Alpafjallanna í hinu dásamlega Salzburgerlandi í Austurríki sem er sérlega heillandi á þessum árstíma. Borgir og bæir skarta sínu fegursta og ilmur frá jólaglöggi og piparkökum svífur um. Vinalega fjallaþorpið Filzmoos í Salzburgerlandi bíður okkar og þaðan höldum við í skemmtilegar skoðunarferðir. Við förum m.a. til hinnar glæsilegu Salzburg, borgar Mozarts og einnar af perlum Austurríkis. Einnig verður farið til St. Gilgen við Wolfgangsee og í hrífandi siglingu til bæjarins St. Wolfgang þar sem við njótum einstakrar aðventustemningar. Ljósadýrðin lætur ekki á sér standa í Berchtesgaden, eins eftirsóttasta ferðamannabæjar Þýskalands, og við förum í rómantíska hestasleðaferð upp í Unterhofalm fjallaselið sem á sér um 350 ára gamla sögu. Í um 1.300 m hæð yfir sjávarmáli gæðum við okkur á jólakræsingum og upplifum ánægjulegt andrúmsloft jólanna. Bad Ischl er þekktur fyrir heilsulindir en á 19. öld heilluðust Franz Joseph I, keisari Habsborgara, og Sissi kona hans af dásamlegri staðsetningu og náttúrufegurð sem umvefur staðinn og er bærinn oft kallaður Keisaraborgin. Að síðustu er aðventublærinn áþreifanlegur í Hallstatt við Hallstättersee sem er einn fallegasti staður Salzkammergut héraðsins en bærinn og umhverfi hans er varðveitt á heimsminjaskrá UNESCO.

Verð á mann 274.900 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 14.800 kr.


Innifalið

  • 8 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
  • Morgun- og kvöldverður allan tímann á hóteli. 
  • Hestasleðaferð upp í Hofalmen fjallasel.
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur. 
  • Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll.
  • Siglingar.
  • Hádegisverðir. 
  • Þjórfé.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Valfrjálst

  • Sigling á Wolfgangsee vatni u.þ.b. € 12. 
  • Kláfur upp í kastalann Hohensalzburg u.þ.b. € 15.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

30. nóvember | Flug til München & Filzmoos

Brottför frá Keflavík kl. 7:20. Mæting í Leifsstöð um 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í München kl. 12:05 að staðartíma. Þaðan verður ekin falleg leið til Austurríkis þar sem gist verður í sjö nætur á 4* hóteli í litla bænum Filzmoos í Salzburgerlandi. 

1. desember | St. Gilgen & sigling á Wolfgangsee til St. Wolfgang

Þessi yndislegi dagur byrjar á akstri til bæjarins St. Gilgen sem er litskrúðugur og aðlaðandi bær og fæðingarstaður Önnu, móður Mozarts. Þar er snotur aðventumarkaður inn á milli litríkra og myndskreyttra húsa. Eftir ljúfa stund í bænum verður farið í siglingu til fallega bæjarins St. Wolfgang sem er undursamlega fallegur bær við samnefnt vatn sem áður var mikilvægur áfangastaður pílagríma. Bærinn hefur frá alda öðli tekið á móti gestum og enn í dag eru fjölmargir sem koma hingað til að njóta dýrðarinnar sem er einstakt augnayndi á aðventunni. Bærinn er ótrúlega fallega skreyttur og sérstaka athygli vekur upplýst, stór jólabjalla úti á Wolfgangsee vatninu. Hér ætlum við að eiga góðan tíma til að kanna líf borgarbúa. 

2. desember | Salzburg & Mozart

Í dag ætlum við að heimsækja hina undurfögru borg Salzburg sem er sérlega heillandi á aðventunni. Borgin sem er þekktust sem fæðingarborg Mozarts er líka fræg fyrir mikilfenglegar byggingar í barokkstíl. Við hefjum heimsóknina á stuttri göngu, förum í gegnum Mirabellgarðinn og göngum eftir Getreidegasse sem er með elstu og þekktustu götum borgarinnar en þar er að finna mjög áhugavert Mozartsafn. Gaman er að koma upp í kastalann Hohensalzburg en hluti kvikmyndarinnar Söngvaseiðs eða Sound of Music var hér tekinn upp. Hér er líka einn af fjölmörgum aðventumörkuðum borgarinnar og héðan er falleg sýn yfir borgina, Salzburgerland og stórfenglegt umhverfi Alpanna í kring. Aðventudýrðin blasir hvarvetna við í borginni og auðvitað gefst tími til að kanna mannlíf borgarinnar á eigin vegum og líta inn á kaupmenn. 

Opna allt

3. desember | Dýrðin í Berchtesgaden í Bæjaralandi

Aðventustemning og ljósadýrð lætur ekki á sér standa í landi Berchtesgaden sem er eitt eftirsóttasta ferðamannasvæði Þýskalands. Það er rómað fyrir mikilfengleik, státar af einstakri náttúrufegurð og hinu fræga fjalli Watzmann við Königssee. Berchtesgaden bíður eftir okkur með glæstri konungshöll. Dýrðin er mikil á aðventunni og hér gefum við okkur góðan tíma til að kanna líf bæjarbúa. Við njótum samverunnar á þessum undursamlega stað en bærinn er sérlega fallegur, með myndskreyttum húsum, verslunum og fjöldanum öllum af skemmtilegum kaffi- og veitingahúsum. Ekki má gleyma jólamarkaðnum sem býður upp á þjóðlegt handverk og ýmislegt annað sem hrífur augað.

4. desember | Aðventutöfrar í Hallstatt & Hallstättersee

Að morgunverði loknum verður ekin falleg leið í rólegheitum til bæjarins Hallstatt. Bærinn og landsvæðið umhverfis hann var skráð á heimsminjaskrá UNESCO árið 1996. Þetta er yndislegur bær sem gaman er að rölta um og náttúrufegurðin er mikil. Við lítum m.a. inn í kirkjuna, þar sem við sjáum merkilegt, útskorið altari frá árinu 1520.  Við skoðum einnig hið heimsþekkta Beinahús sem er kapella frá 12. öld. Þar gefur að líta stærsta safn skreyttra hauskúpa í heiminum.  Að því loknu gefst drjúgur tími til að njóta þess að vera á þessum dásamlega stað áður en aftur verður ekið á hótelið. 

5. desember | Heilsulindir Bad Ischl - Keisaraborgarinnar

Í hjarta Salzkammergut svæðisins, umvafin ánum Traun og Ischl, liggur bær heilsulindanna, Bad Ischl. Strax á 19. öld heilluðust hjónin Franz Joseph keisari Habsborgara og Elisabeth „Sisi“ af bænum, dásamlegri staðsetningu og náttúrufegurðinni allt um kring. Á rólegri göngu um bæinn, sem þekktur er undir nafninu Keisaraborgin, upplifum við konunglega fortíð hennar en margar aðrar þekktar persónur sóttu borgina heim og gerðu hana að hjarta heimsborgara í Austurríki. Dýrðin er mikil í borginni á aðventunni og við ætlum að njóta alls þess sem hún býður upp á. Þar má finna sjarmerandi jólamarkaði og það gefst góður tími til að líta inn á aðra kaupmenn borgarinnar. Einnig er mikið af keisaralegum kaffi- og veitingahúsum sem gaman er að kíkja á.  

6. desember | Filzmoos & hestasleðaferð upp í fjallaselið Unterhofalm

Morguninn notum við í að kanna umhverfið í þessum litla bæ á skemmtigöngu en annars er tilvalið að taka daginn rólega og njóta aðstöðunnar á heilsulind hótelsins. Síðdegis er komið að miklu ævintýri. Hestasleðar flytja okkur upp í fjallaselið Unterhofalm í 1.300 m hæð yfir sjávarmáli en þessi töfrandi sleðaferð tekur um klukkutíma. Þegar upp er komið verður farið í seiðmagnaða göngu að Almsee vatninu en leiðin er upplýst með kyndlum og gangan tekur liðlega 30 mínútur. Eftir heillandi göngu um upplýsta ísskúlptúra er upplagt að fá sér jólaglögg og smákökur. 

7. desember | Kveðjustund & heimferð

Aðventuævintýrið okkar er á enda. Ekið verður út á flugvöll í München en brottför þaðan er kl. 13:05 og lending í Keflavík kl. 16:00 að staðartíma.
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum.

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Marianne Eiríksson

Marianne fæddist 1964 í Schaffhausen í Sviss, við landamæri Þýskalands. Hún er menntaður ferðamálafræðingur en kom til Íslands í fyrsta skipti árið 1985 og dvaldist þá á sveitabæjum í nokkra mánuði. Síðan 1992 hefur Marianne búið á Íslandi með íslenskum eiginmanni sínum. Hún er útskrifuð frá leiðsöguskólanum og starfar m.a. sem leiðsögumaður.
Marianne segist sjálf vera orðin meiri Íslendingur en Svisslendingur en hún talar þýsku, ensku, frönsku, ítölsku og að sjálfsögðu reiprennandi íslensku.
Áhugamál Marianne eru ferðalög, tungumál og hestamennska.

Hótel

Hotel Hanneshof

Við gistum sjö nætur á 4* alpahóteli, Hanneshof Filzmoos, þar sem dásamlegt fjallasvæði umlykur okkur. Hér stundar fólk fjallgöngur á sumrin en skíði um vetur. Á þessu fjölskyldurekna hóteli er innisundlaug og heilsulind þar sem finna má innrauðan klefa, slökunarherbergi og gufuböð.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti