Síðsumarævintýri á Sikiley

25. september – 10. október 2025 (15 dagar)

Upplifðu sumarævintýri á undurfögru og sólríku eyjunni Sikiley. Fornar minjar bera vitni um 3.000 ára sögu hennar og menningu þeirra þjóða sem hér hafa ríkt í gegnum tíðina. Ferðin hefst með flugi til Nice við Côte d’Azur ströndina í Frakklandi og því næst verður siglt til Palermo, höfuðborgar Sikileyjar, en hún stendur við fallegasta flóa eyjunnar. Ásamt því að skoða Palermo verður farið til Monreale, töfrandi bæjar sem státar af stórkostlegri dómkirkju, klaustri og fyrrum konunghöll. Á leið til Marina di Ragusa upplifum við Agrigento, sem er ein hinna gömlu grísku borga, og Vall di Templi eða dal hofanna þar sem sjá má mjög áhugaverðar fornminjar og eitt stærsta fornminjasvæði í heimi. Við sækjum einnig heim Ragusa sem er heillandi bær í barokkstíl. Síðasti náttstaður Sikileyjar verður við hina fögru Giardini Naxos strönd. Á leið þangað munum við eiga töfrandi dag í forngrísku borginni Sýrakúsa en tímalaus fegurð hennar heillar enn í dag. Komum til Taormina sem er yndislegur bær en þar skrifaði Laxness Vefarann mikla frá Kasmír. Einnig förum við í ævintýralega ferð að Etnu, þekktasta eldfjalli Evrópu, og við rætur Etnu verður hádegissnarl að hætti eyjarskeggja. Á leið í skip í Palermo verður komið við í Cefalú, bæ með hrífandi arabískum blæ. Þessari glæsilegu ferð lýkur með skoðunarferð um Napólí og heimflugi frá Róm.

Verð á mann 549.900 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 126.400 kr.


Innifalið

  • 15 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
  • Sigling með næturferju til og frá Palermo.
  • Tveir kvöldverðir og einn morgunverður um borð í ferjunni.
  • Einn morgunverður í Palermo.
  • Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum.
  • Létt hádegishressing hjá vínbónda við rætur Etnu.
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur.
  • Hádegisverðir.
  • Þjórfé.

Valfrjálst

  • Aðgangur í Normanen höllina u.þ.b. € 15.
  • Hringleikahúsið í Taormina u.þ.b. € 10
  • Ferð upp á Etnu með kláf og jeppa u.þ.b. € 60.
  • Aðgangur í Monreale kirkjuna u.þ.b. € 4.
  • Aðgangur í Tal der Tempel u.þ.b. € 10.
  • Hringleikahúsið í Syracuse u.þ.b. € 10.

Nánari upplýsingar

Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að Bændaferðir séu alla jafna þægilegar rútuferðir er alltaf einhver ganga, t.d. í bæjarferðum. Margar evrópskar borgir eru bæði hæðóttar og ójafnar undir fæti og aðgengi að áfangastöðum þannig að leggja þarf rútunni mislangt frá. Ef þú hefur einhverjar vangaveltur varðandi þetta vinsamlegast ekki hika við að hafa samband við skrifstofu Bændaferða.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

25. september | Flug til Nice & gist fyrstu nóttina

Brottför frá Keflavík kl. 08:20, mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Nice kl. 14:40 að staðartíma. Ekið verður á hótel í nágrenni borgarinnar þar sem gist verður fyrstu nóttina.

26. september | Nice & sigling frá Genúa til Palermo á Sikiley

Eftir góðan morgunverð og rólegheit byrjum við á skemmtilegri skoðunarferð um dásamlegu borgina Nice við Cote d´Azur í Frakklandi. Það er ekki annað hægt en að hrífast af bæði borginni sjálfri og bæjarstæði hennar við Englaflóann. Nice er í hópi gömlu, grísku  borganna en víðsvegar um hana standa glæsilegar byggingar, einskonar minnisvarðar liðins tíma. Þetta er ein vinsælasta ferðamannaborgin við ströndina og því er alltaf mikið um að vera. Hún bókstaflega iðar af mannlífi allt árið um kring. Eftir góðan tíma þar verður stefnan tekin á Genúa. Um kvöldið verður stigið um borð í ferju og snæddur kvöldverður áður en landfestar eru leystar og haldið af stað til Sikileyjar. Við gistum eina nótt í ferjunni í tveggja manna klefum með snyrtingu.

27. september | Sigling á Miðjarðarhafi & Palermo

Við snæðum morgunverð og njótum okkar á siglingunni á Miðjarðarhafinu. Upplagt er að sitja úti, sóla sig og njóta þess að líða áfram á spegilsléttu hafinu. Siglt verður framhjá eyjum eins og Korsíku, Elbu, Sardiníu og Liparísku eyjunum. Förinni er heitið til Palermo, höfuðborgar Sikileyjar, borgar heilagrar Rosalíu, en hún stendur við einn fallegasta flóa eyjunnar. Seinnipartinn leggur skipið að landi og við höldum á hótelið okkar en gist verður í þrjár nætur í Santa Flavia við Porticello flóann, rétt fyrir utan Palermo. Hótelið stendur við fallega grýtta strönd og þar er sundlaug, verönd og líkamsræktaraðstaða.

Opna allt

28. september | Skoðunarferð um Palermo & konungsperlan Monreale

Í dag verður ekið um Palermo en sagt er að engin önnur borg hafi jafn oft orðið fyrir innrásum og Palermo og skýrir það fjölbreytta menningu borgarinnar. Þessi borg kemur manni skemmtilega á óvart. Við förum í skoðunarferð og lítum á nokkra þá dýrgripi sem hér er að sjá, m.a. dómkirkju frá 6. öld og höllina Palazzo Normanni. Báðar voru byggðar í  arabískum-normanískum stíl og eru á heimsminjaskrá UNESCO. Eftir það verður ekið til Monreale sem er yndisfagur bær og státar af einni stórkostlegustu dómkirkju eyjunnar og klaustri heilags Benedikts frá 12. öld. Dómkirkjan er í sérlega fallegum byggingarstíl þar sem blandast saman arabísk, býsönsk og gotnesk menningaráhrif. Kirkjan er skreytt fjölmörgum, töfrandi mósaíkmyndum sem eru svo dæmigerðar fyrir Sikiley. Eftir góðan tíma hér verður ekið til baka á hótelið okkar. 

29. september | Frjáls dagur í Santa Flavia við Porticello flóann

Nú ætlum við að njóta þess að vera á þessum undurfagra stað, nota aðstöðuna við hótelið og dekra við sál og líkama. Upplagt að fara í gönguferð og kanna umhverfið í nágrenninu, taka sér sundsprett í Miðjarðarhafinu og sóla sig við ströndina sem tilheyrir hótelinu.

30. september| Agrigento, Vall di Templi & Marina di Ragusa

Við yfirgefum Santa Flavia og ökum til Agrigento, sem er ein hinna gömlu grísku borga. Í næsta nágrenni er hinn stórmerkilegi dalur hofanna eða Vall di Templi. Hér má sjá mjög áhugaverðar fornminjar, um 20 dórísk hof frá 6.-5. öld f. Kr. Þetta fornminjasvæði nær yfir 1.000 hektara og er stærsta fornminjasvæði í heimi en einnig er hér áhugavert fornleifasafn. Dalurinn umhverfis hofin er þakinn ólífulundum, sítrónutrjám og vínekrum. Við tökum okkur góðan tíma til að skoða minjarnar og ökum svo með fram suðurströndinni til Marina di Ragusa þar sem gist verður í þrjár nætur á góðu hóteli við ströndina, með útisundlaug, fallegum garð og líkamsrækt.

1. október | Barokkborgin Ragusa & frjáls tími

Að loknum morgunverði verður farið í skoðunarferð um borgina Ragusa sem er heillandi bær í barokkstíl. Árið 1693 var borgin illa leikin af öflugum jarðskjálfta. Eftir það varð mikil uppbygging og fékk borgin þá á sig núverandi mynd. Borgin er fögur, meðal annars vegna þess að svo vel tókst til við varðveislu miðaldahluta hennar sem setur virkilega fallegan  svip á borgina. Hér hafa verið teknir upp vinsælir ítalskir sjónvarpsþættir. Ragusa byggðist upp á fjallinu Monti Iblei í dalnum Val di Noto og talið er að fyrsta byggðin á þessu svæði sé frá um 3.000 f.Kr. Eftir stutta og skemmtilega skoðunarferð verður tími til að fá sér hádegishressingu. 

2. október | Frjáls dagur í Marina di Ragusa

Í dag ætlum við að njóta þess að vera við þessa fallegu strönd í Marina di Ragusa.
Upplagt er að fara í göngu með gullnu, fallegu sandströndinni, kanna umhverfið betur og skoða litla bæinn Marina di Ragusa.

3. október | Skoðunarferð til Sýrakúsa & Giardini Naxos

Kveðjum Marina di Ragusa eftir ljúfan tíma. Tímalaus fegurð fornu borgarinnar Sýrakúsa heillar okkur í dag. Hvergi er eins mikið af forngrískum minjum eins og hér, enda var þetta ein stærsta borg Grikkja til forna, stærri en Aþena. Í mörg hundruð ár var þetta mikilvægasta borg eyjunnar. Hér má sjá stórkostlegar fornminjar, t.d. grískt leikhús sem var höggvið í klett með sætum fyrir 15.000 áhorfendur. Auðvitað skoðum við eyjaperluna Ortygia, sem geymir gamla bæjarhluta Sýrakúsa, og einnig verður frjáls tími til að kanna borgina á eigin vegum og fá sér hressingu að hætti íbúanna. Því næst heldur ferð okkar áfram til Giardini Naxos strandarinnar þar sem gist verður í fimm nætur á hóteli með útisundlaugar, fallegan garð, líkamsrækt og í 300 m fjarlægð frá ströndinni. 

4. október | Frjáls dagur í Giardini Naxos

Dagur í rólegheitum og slökun. Nú er hægt að njóta þess að vera á þessum fallega stað og nota aðstöðuna við hótelið. Hægt er að fara í gönguferð inn í bæinn sem er u.þ.b. 20 mín ganga eða njóta þess að ganga í flæðarmálinu við gullnu ströndina og baða sig í fegurð eyjunnar.

5. október | Eldfjallið Etna & hádegishressing hjá vínbónda

Nú verður farið í ævintýraferð á eldfjallið Etnu sem er eitt þekktasta eldfjall Evrópu. Ekið verður að rótum fjallsins en þaðan gefst áhugasömum tækifæri á að taka kláf upp í 2.918 m hæð. Þegar upp er komið heldur ferðin áfram með jeppum um svæðið. Þetta er mikil upplifun og ferð sem ekki má missa af. Eftir það verður farið í hádegishressingu til vínbónda í nágrenni fjallsins.

6. október | Töfrandi bærinn Taormina & frjáls tími

Taormina er undurfallegur bær sem situr hátt uppi á bjargi yfir Jóníska hafinu og er byggður uppi í brattri hlíð. Héðan er stórfenglegt útsýni út á hafið og litlu eyjuna fyrir framan, Isola Bella. Í gegnum aldirnar hafa margir rithöfundar skrifað hér fræg verk og slóst Halldór Laxness í þeirra hóp þegar hann skrifaði hér bókina Vefarann mikla frá Kasmír. Þessi skrif juku mjög á vinsældir bæjarins sem þótti áður ómissandi áfangastaður í Evrópuhringferð heldra fólks. Efst í bænum má sjá gamalt hringleikahús Grikkja og Rómverja sem enn er í notkun. Frjáls tími gefst að skoðunarferð lokinni til að skoða bæinn, fá sér hressingu og feta þessar skemmtilegu götur.

7. október | Rólegheit & slökun

Nú njótum við sælunnar í þessari náttúrufegurð sem umvefur okkur. Slökun og rólegheit er  á dagskrá í dag. Hægt er að fara í göngu inn í Giardino Naxos eða fara með strætisvagni, taka sundsprett eða njóta þess sem hótelið hefur upp á að bjóða.

8. október | Cefalú, Palermo & sigling til Napólí

Þennan síðasta dag okkar á Sikiley verður fyrst staldrað við í bænum Cefalú sem tekur á móti okkur með sínum arabíska blæ. Arabar voru við völd í Cefalú í rúm 200 ár á eftir Byzantínum sem höfðu þar yfirráð í tæp 500 ár. Förum í stutta skoðunarferð um gamla miðaldahluta borgarinnar og í dómkirkjuna sem er ein áhugaverðasta miðaldabygging Sikileyjar. Eftir það verður frjáls tími til að fá sér hressingu og njóta þess að kanna líf bæjarbúa. Því næst verður ekið til Palermo en þar munum við fá góðan tíma í borginni fram að brottför. Síðla dags verður farið um borð í ferju sem flytur okkur yfir til Napólí. Þar bíður okkar kvöldverður en við gistum þessa nótt í ferjunni í tveggja manna klefum með snyrtingu.

9. október | Skoðunarferð í Napólí & Róm

Árla dags leggur skipið að landi í Napólí þar sem morgunverður bíður okkar í landi. Eftir það verður farið í skemmtilega skoðunarferð um borgina sem er heillandi við suðausturströnd Ítalíuskagans. Gamli miðbærinn í Napólí var stofnaður á bronsöld en hann er á heimsminjaskrá UNESCO og hefur töluverðan sjarma sem umvefur okkur á göngu um hann. Skoðum það helsta í borginni en hana prýða glæstar byggingar og konungleg torg. Eftir skoðunarferð verður tími til að njóta lífsins í þessu einstaka umhverfi og fá sér hressingu, eins og t.d. hina dæmigerðu Pizza Napoletana sem er afar ljúffeng. Eftir það verður ekið í átt að Rómarborg þar sem gist verður síðustu nóttina í nágrenni borgarinnar.

10. október | Heimflug frá Róm

Nú er komið að heimferð eftir yndislega daga. Brottför frá flugvellinum í Róm kl. 15:55 og lending í Keflavík kl. 18:45 að staðartíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Hótel & gisting

  • 25. - 26. september = Nice = Novotel Nizza Airporto Hotel
  • 26. - 27. september = Ferja frá Genúa til Palermo
  • 27. - 30. september = Palermo = Hotel Domina Zagarella
  • 30. sept. – 3. október = Marina di Ragusa = Hotel Acacia
  • 3. – 8. október = Naxos = Unahotel Naxos Beach
  • 8. - 9. október = Ferja frá Palermo yfir til Napólí
  • 9. - 10. október = Pomezia bei Rome = Hotel Principe

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Hólmfríður Bjarnadóttir

Hólmfríður Bjarnadóttir (Hófý) heiti ég og er fædd árið 1960 á Patreksfirði. Ég er móðir þriggja drengja og er búsett í Bæjaraskógi í Þýskalandi um þessar mundir með yngsta drenginn, Gabríel Daða. Eiginmaður minn er Norbert Birnböck sem var einn af bílstjórum Bændaferða.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti