Aðventudýrð í Tríer

26. nóvember – 3. desember 2025 (8 dagar)

Aðventutöfrar og hrífandi áfangastaðir er það sem við upplifum í þessari glæsilegu ferð um Móseldalinn. Hin söguríka borg Rómverja, Tríer, elsta borg Þýskalands, lætur engan ósnortinn. Hún er rík af fornminjum og skartar jafnan sínu fegursta á aðventunni. Ljómi aðventunnar og ilmurinn af glöggi kemur okkur í jólastemningu í heillandi dagsferðum frá Tríer, m.a. til bæjarins Bernkastel-Kues sem hefur verið kallaður andlit Móseldalsins og er rómaður fyrir falleg bindingsverkshús og miðaldablæ. Cochem er með fallegri bæjum við ána en hann státar af fögrum kastala sem gnæfir sem kóróna yfir bænum og dásamlegum jólamarkaði. Aðventublærinn umvefur okkur í vínbænum Traben-Trarbach við ána Mósel en þar upplifum við sérstakan jólamarkað í fyrrum vínkjallara frá 16. öld sem er einsdæmi. Einnig verður farið í töfrandi aðventusiglingu á Mósel og hin glæsilega borg Koblenz sótt heim en hún stendur við ármót Mósel og Rín og þar er að finna einn fallegasta jólamarkað Móseldalsins.

Niðurgreitt verð á mann í tvíbýli 289.900 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 46.300 kr.


Innifalið

  • 8 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
  • Morgunverður allan tímann á hóteli.
  • Fjórir kvöldverðir á hóteli.
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðventusigling á Mósel u.þ.b. € 19.
  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur.
  • Siglingar, vínsmökkun og kláfar.
  • Hádegisverðir.
  • Þjórfé.
  • Forfalla- og ferðatryggingar.

Nánari upplýsingar

Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að Bændaferðir séu alla jafna þægilegar rútuferðir er alltaf einhver ganga, t.d. í bæjarferðum. Margar evrópskar borgir eru bæði hæðóttar og ójafnar undir fæti og aðgengi að áfangastöðum þannig að leggja þarf rútunni mislangt frá. Ef þú hefur einhverjar vangaveltur varðandi þetta vinsamlegast ekki hika við að hafa samband við skrifstofu Bændaferða.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

26. nóvember | Flug til Frankfurt & Tríer

Brottför frá Keflavík kl. 7:25. Mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Frankfurt kl. 12:05 að staðartíma. Þaðan er ekin fögur leið til Tríer, elstu borgar Þýskalands. Þar verður gist í sjö nætur á góðu hóteli í miðbænum. Hótelið býður upp á heilsurækt í rómverskum stíl með sánu, rómversku gufubaði og legubekkjum til að slaka á eftir eril dagsins.

27. nóvember | Traben Trarbach & aðventusigling á Mósel

Vínbærinn Traben-Trarbach við ána Mósel er vel þekktur en hann heimsækjum við í dag. Um aldamótinn 1900 var hann næst mikilvægasta miðstöð viðskipta með vín á eftir Bordeaux í Frakklandi. Þessi mikla eftirspurn varð þess valdandi að mikið net vínkjallara var byggt undir bænum. Sumir þeirra eru ennþá í notkun sem slíkir en aðrir hafa fengið nýtt hlutverk. Hér upplifum við til dæmis sérstakan jólamarkað sem er í vínkjallara frá 16. öld en hann er algert einsdæmi við ána. Sá kallast vín- og jólamarkaður Mósel og þar upplifum við ótrúlega stemningu. Þótt vín leiki þar ákveðið hlutverk þá er þema markaðarins menning og hér ber margt fallegt fyrir augu, handverk, antíkmarkaður, tískufatnaður og skart. Eftir góðan tíma verður farið í töfrandi siglingu þar sem boðið er upp á jólaglögg og jólastollen sem er ávaxtabrauð og tilheyrir aðventunni í Þýskalandi

28. nóvember | Jólastemning í Cochem

Cochem er einstaklega heillandi og er með fegurri bæjum við ána og þá ekki síst á aðventunni þegar hann er fallega skreyttur. Efst á hæð fyrir ofan bæinn stendur glæsilegur kastali en hann setur mikinn svip á staðinn og það er gjarnan eitthvað skemmtilegt á dagskrá í honum á aðventunni. Enginn sem á ferð um dalinn á þessum árstíma skyldi láta jólamarkaðinn í Cochem fram hjá sér fara en hann er staðsettur á torginu Endertplatz. Mikil jólastemning er um allan bæ og upplagt að ylja sér við jólaglögg og njóta lífsins.

Opna allt

29. nóvember | Skoðunarferð um Tríer & frjáls tími

Aðventutöfrar borgarinnar dyljast engum í spennandi skoðunarferð dagsins. Eftir góðan morgunverð skoðum við þessa elstu borg Þýskalands. Þar er að finna mjög merkilegar minjar frá tímum Rómverja en þeir stofnuðu borg sem þeir nefndu Augusta Trevrorum árið 18-17 f. Kr. Hér er margt að sjá, töfrandi kirkjur, glæstar barokkbyggingar og ekki má gleyma borgarhliðinu, Porta Nigra frá árinu 17 e. Kr. sem er tákn Tríer. Skoðunarferðinni lýkur á aðaljólamarkaði borgarinnar og þar er upplagt að fá sér jólaglögg og ristaðar möndlur en ilmur þeirra svífur um loftin. Nú gefst frjáls tími til að skoða borgina á eigin vegum, rölta um verslunargötur og líta inn til kaupmanna borgarinnar sem eru fjölmargir. Upplagt er að enda daginn á heilsulind hótelsins fyrir kvöldverð. 

30. nóvember | Dásemdardagur í Koblenz

Einn fallegasti jólamarkaður Móseldalsins er í borginni Koblenz og einkennist hann af yfir hundrað skreyttum smáhýsum. Borgin stendur við ármót Mósel og Rín og þar sem árnar renna saman heitir Deutsches Eck eða þýska hornið og er það oft nefnt fallegasta horn Þýskalands. Við förum í töfrandi skoðunarferð um þessa sögufrægu, rúmlega 2000 ára gömlu borg, Koblenz. Gaman er að skoða gamla miðaldabæinn sem er prýddur glæstum byggingum, fallegum kirkjum, þröngum, litlum götum og gömlum bindingsverkshúsum. Eftir skoðunarferð gefst frjáls tími til að kanna borgina á eigin vegum, rölta um gömul stræti og torg og ekki má láta dýrð jólamarkaðsins fram hjá sér fara.

1. desember | Rólegur dagur í Tríer

Rólegur dagur er á dagskrá okkar og því er upplagt að njóta þess að vera í Tríer og skoða borgina betur á eigin vegum. Hægt er að rölta um verslunargötur og fara í skemmtilega vínsmökkun sem er víða í boði. Einnig er hægt heimsækja jólamarkað borgarinnar þar sem gott er að gæða sér á glühwein, heitu súkkulaði, grilluðum pylsum eða öðrum veitingum sem þar finnast. Gaman er að skoða skemmtilega bása og smáhýsi markaðarins sem bjóða upp á alls kyns varning. Fyrir þá sem vilja meiri rólegheit er upplagt að nota glæsilega heilsulind hótelsins. 

2. desember | Aðventudýrð í Bernkastel-Kues & vínsmökkun

Aðventudýrðin, rómantíkin og náttúrufegurðin láta engan ósnortinn í Móseldalnum á leið okkar til bæjarins Bernkastel-Kues. Hann er perla Móseldalsins, rómaður fyrir falleg bindingsverkshús og töfrandi blæ miðalda. Jólamarkaðurinn, Bernkasteler Weihnachtsmarkt, er einmitt staðsettur mitt í þessum gamla miðaldabæ og þar er að finna eitt skemmtilegasta jóladagatal sem fyrirfinnst. Hér bregðum við okkur í vínsmökkun og  gefum okkur síðan góðan tíma til að njóta aðventunnar í þessum einstaka jólabæ.

3. desember | Kveðjustund & heimferð

Það er komið að heimferð eftir ljúfa daga í Trier. Við ökum til Frankfurt en brottför þaðan er kl. 13:05. Lent í Keflavík kl. 15:55 að staðartíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Hótel

  • Hotel Park Plaza Trier 

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Gísli Einarsson

Gísli Einarsson hefur unnið ýmiskonar störf, lengst af þó við fjölmiðla. Hann er í dag dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu en kemur einnig reglulega fram sem skemmtikraftur á árshátíðum, þorrablótum og hvers kyns skemmtunum. Þá hefur Gísli tekið að sér að staðarleiðsöng fyrir hópa um Vesturland.
 
Gísli er eins og fleiri sveitamenn alinn upp við að menn fari ekki á fjöll nema eiga þangað erindi, annað hvort til að leita sauða eða skjóta rjúpur. Í seinni tíð hefur hann þurft að kúvenda i þeirri afstöðu því hans aðaláhugamál í dag eru fjallgöngur, innanlands sem utan.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti